19.03.2012 11:31

Fyrstu mótin

Nú erkeppnistímabilið að byrja og var annað vetrarót Hestamannfélagsins Smára s.l. laugardag og þar kepptu, Manni og Prins, Valdís Una á Pela, Palli Maggi einnig á Pela og Hjalli á Sameignar-Gránu emoticon
Manni go Prins enduðu í fyrsta sæti í Fullorðinsflokk, Palli og Peli enduðu í 4-5 sæti í barnaflokk og Una fékk flottan verðlaunapening fyrir þátttöku sína í pollaflokk emoticon



Manni og Prins frá Langholtskoti



Hjalli og Sameignar-Grána



Valdís Una og Peli frá Langholtskoti (fyrsta frá hægri)


  Palli og Peli frá Langholtskoti  (aðrir frá vinstri)




Hér eru Valdís Una og Breyting frá Haga en þær tóku saman þátt í fyrsta vetrarmóti Smára emoticon

20.05.2011 12:02

Ótitlað

Jæja, nú fer vonandi að lifna við síðunni okkar og við ætlum að fara að koma inn nýjum myndum.
Veturinn er liðinn og sumarið gengið í garð.  Mótaröðin, Uppsveitadeildin, er búin og endaði Manni í þriðja sæti í einstaklingskeppninni í feyki sterkri keppni.

Fyrsta folaldið okkar er fætt og er það rauð, stjörnóttur hestur undan Þulu frá Langholtskoti og Hrana frá Hruna.  Og bíðum við spennt eftir öllum hinum folöldunum.

Manni og Breyting frá Haga hafa staðið sig vel í töltkeppnum í vor og eins og staðan er í dag er Manni og Breyting í 13. sæti á stöðulista landsins í tölti og er auðvitað stefnt með frökenina á Landsmótið. 

Næsta skref hjá okkur eru auðvitað kynbótasýningar og keppnir. 

Kveðja úr Kotinu emoticon

  • 1
Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 26
Gestir í gær: 12
Samtals flettingar: 28798
Samtals gestir: 10289
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 20:18:42