19.03.2012 11:31
Fyrstu mótin
20.05.2011 12:02
Ótitlað
Jæja, nú fer vonandi að lifna við síðunni okkar og við ætlum að fara að koma inn nýjum myndum.
Veturinn er liðinn og sumarið gengið í garð. Mótaröðin, Uppsveitadeildin, er búin og endaði Manni í þriðja sæti í einstaklingskeppninni í feyki sterkri keppni.
Fyrsta folaldið okkar er fætt og er það rauð, stjörnóttur hestur undan Þulu frá Langholtskoti og Hrana frá Hruna. Og bíðum við spennt eftir öllum hinum folöldunum.
Manni og Breyting frá Haga hafa staðið sig vel í töltkeppnum í vor og eins og staðan er í dag er Manni og Breyting í 13. sæti á stöðulista landsins í tölti og er auðvitað stefnt með frökenina á Landsmótið.
Næsta skref hjá okkur eru auðvitað kynbótasýningar og keppnir.
Kveðja úr Kotinu
- 1
